Litecup Baby
Litecup er glas sem sullast ekki úr nema það sé hrist kröftuglega. Í botni þess er ljós sem kviknar á þegar dimmir og aldrei þarf að slökkva á glasinu. Tilvalið fyrir dimmar íslenskar nætur þar sem glasið virkar sem næturljós og týnist ekki í myrkrinu.
- Þægilegt fyrir ferðalög, í bílinn og útilegur.
- Tekur 200 ml af vökva.
- Handfang sem hægt er að taka af. Á handfanginu er borði og klemma til að koma í veg fyrir að glasið detti á gólfið eða á jörðina.
- Auðvelt að þrífa, má setja í uppþvottavél þegar búið er að smella stykkinu með ljósinu af.
- Hentar fyrir alla goslausa drykki.
- 4 litir í boði, þrjár stærðir og hægt að kaupa auka ljós.